..og 07.06.06 genginn í garð. Ég sofnaði rétt eftir Jay Leno í
gær sem er rétt fyrir tólf. Ég vissi að það var enn möguleiki á
heimsendi! Hversu þreytt þarf manneskja að vera til að sofna
vitandi það að heimsendi hefði verið spáð þann dag. Ég hjólaði heim
úr vinnunni, og hjólaði síðan á æfingu og í byrjun æfingarinnar
áttum við að senda bolta á lofti innanfótar beint í fangið á
manninum á móti. Boltarnir mínir fóru ýmist langt yfir eða lengst
til hliðar. Ég hafði bara enga stjórn á fótunum eftir þetta
hjólerí. Svo eftir púlæfingu hjólaði ég aftur heim. En þetta þýðir
bara eitt! Stinnri rass!
Skjár einn endursýnir nú Melrose place. Ég man þegar ég var 7
ára og horfði á þessa þætti á fimmtudagskvöldum með systkinum
mínum. Alison, Jake, Michael, Matt, Jane, Peter, Amanda; Taylor,
Kimberly, Billy, þau voru mín fimmtudagskvöld! Og ekki má gleyma
rössunum í byrjun.
Nú er ég byrjuð að vinna á Skattinum aftur. Ef þið hafið
spurningar í sambandi við virðisaukaskattinn þá er ég á símanum á
þriðjudögum. Nú er enginn Kristján og engin Dagný. Ef þið
heyrið í fréttunum um unga stúlku sem sökkti sér í hafið við
höfnina, ekki hafa áhyggjur því það er ekki ég heldur dóttir
yfirmanns míns sem er að byrja í röðun á mánudaginn.
Jæja, ég ætla að fara að tía mig heim úr vinnunni, mér er
boðið í mat til hennar Bjargar Magneu í kvöld og er henni margt til
listana lagt þegar kemur að matargerð.
rass...vá nú er ég búin að segja rass þrisvar í þessari
bloggfærslu! Fjórum sinnum!
Bless bless!